0

Karfan þín er tóm

Íslensku Lýsingarverðlaunin

Algengar spurningar

Hér eru nokkur atriði sem fólk spyr oftast um áður en það fær sér LUCIO.

Mun LUCIO passa og líta vel út í rýminu hjá mér?+

LUCIO er 108 × 121 cm og nýtur sín best á vegg sem er um tveir metrar á breidd eða meira. Hann passar vel yfir skenk, á gangi, í borðstofu, stofu eða forstofu. Við getum aðstoðað þig við að meta staðsetningu og hlutföll áður en þú pantar.

Er LUCIO meira en venjulegur spegill?+

Já. Í LUCIO verður til samspil spegils, forms og baklýsingar í einu verki, sem gefur rýminu dýpt, hlýju og miðju. Hugmyndin sækir líka í sama aðdráttarafl og arinninn hafði áður á heimilinu: staðinn sem fólk vildi safnast að, líða vel hjá og dvelja lengur. Með LUCIO færðu þessa eftirsóttu stemningu heim: notalega upplifun sem maður finnur í vel hönnuðum hótelrýmum, fallega lýstum setustofum og skapandi vinnustofum. Munurinn er að nú verður þessi stemning hluti af þínu eigin heimili. Þú þarft ekki að fara neitt.

Er flókið að setja hann upp?+

Nei. LUCIO er festur upp með tveimur 6 mm skrúfum og hægt er að setja hann á gips-, tré- eða steinveggi. Rafmagn er tengt í dós eða leitt í næstu innstungu. Við aðstoðum við uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu.

Hvað kostar LUCIO og hvernig get ég greitt?+

Verðið er á bilinu 295.000 til 379.000 kr. Í boði eru greiðsluleiðir eins og Netgíró, Pei, Visa, Euro og PayPal, ásamt möguleika á raðgreiðslum.